Múmínkanna – Bath House 1ltr

8.190 kr.

Ekki til á lager

Vörunúmer: muminkanna-bath-house-1ltr Flokkar: , Merkimiðar: , ,

Lýsing

Síðla veturs fer Tikka-tú að þvo gluggana á strandhúsinu og viðra strandhandklæðin.
Múmínálfarnir liggja yfirleitt í dvala á þessum tíma árs og hafa ekki hugmynd um að Tikkatú dvelji í strandhúsinu á meðan.

Strandhúsið sem Múmínpabbi byggði er hringlótt, alveg eins og Múmínhúsið. Hinsvegar er það hálfgerð óreiða. Spýturnar eru allar í mismunandi stærðum auk þess sem saltið frá sjónum og sólin hafa upplitað það svo það lítur ansi illa út. Sólin skín í gegnum rauðu og grænu gluggana á strandhúsinu og speglast fallega á gólfinu.

Á tröppunum sem liggja í átt að sjónum sjáum við Míu litlu en hún er komin með eldhúshnífana hennar Múmínmömmu og ætlar að búa til skauta úr þeim og prufa að skauta á frosnum sjónum.
Í dyragættinni sjáum við Múmínsnáðann klæddan í baðslopp. Sólin lokkar vorið til að koma og brátt verður baðhúsið aftur komið í notkun.

Bath house kannan kom út haustið 2020. Kannan er með fallegu keramík loki sem ver innihald könnunnar fyrir sól og skordýrum.